Stök frétt

Umhverfisstofnun áformar að framlengja starfsleyfi Sláturfélags Suðurlands svf í Fossnesi á Selfossi, sem gildir fyrir sláturhúsi og brennsluofni. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 25. maí 2024.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202312-059. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 5. janúar 2024.

Skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja