Eftirfarandi eru upplýsingar um ferli við stofnun vörslureiknings rekstraraðila og flugrekenda á Íslandi í skráningakerfinu. Vinsamlegast athugið að vörslureikningur getur ekki verið stofnaður fyrr en öll nauðsynleg skjöl hafa borist Umhverfisstofnun og öll gjöld hafa verið greidd. Ófullnægjandi umsóknum verður vísað frá.
Fyrir hvern reikning skulu vera a.m.k. tveir viðurkenndir fulltrúar. Viðurkenndi fulltrúinn hefur aðgang að vörslureikningi rekstraraðila eða flugrekanda í skráningakerfinu og hefur leyfi til þess að hefja ferli s.s. skila losunarheimildum og færa losunarheimildir fyrir hönd reikningshafans.
Mögulegt er að skipa fleiri en tvo viðurkennda fulltrúa fyrir hvern reikning. Þá er einnig mögulegt að skipa viðurkenndan viðbótarfulltrúa sem hefur einungis leyfi til þess að skoða reikninginn og samþykkja aðgerðir viðurkenndra fulltrúa, sé þörf á samþykki fyrir aðgerð. Leyfilegt er að skipa að hámarki 6 viðurkennda fulltrúa.
Vinsamlegast athugið að ákveðnar aðgerðir í kerfinu krefjast þess að tveir viðurkenndir fulltrúar framkvæmi þær (eða einn viðurkenndur fulltrúi og einn viðurkenndur viðbótarfulltrúi, sjá neðar). Þessar aðgerðir eru:
Leyfilegt er að skipa viðurkenndan viðbótarfulltrúa á vörslureikning, það er þó ekki nauðsyn. Viðurkenndur viðbótarfulltrúi hefur aðgang að vörslureikningi og getur samþykkt aðgerðir sem framkvæmdar eru af viðurkenndum fulltrúa reiknings. Viðurkenndur viðbótarfulltrúi virkar því sem annar undirritunaraðili á vörslureikningi fyrir aðgerðir sem þarfnast samþykkis og er það gert í þeim tilgangi að auka öryggi.
Leyfilegt er að skipa fleiri en einn viðurkenndan viðbótarfulltrúa en þó að hámarki 10.
Vinsamlegast athugið að þegar viðurkenndur viðbótarfulltrúi hefur verið skipaður á reikning er oftast þörf á því að hann samþykki aðgerðir eins og:
Áður en hægt er að óska eftir stofnun vörslureiknings rekstraraðila eða flugrekanda í skráningakerfinu þarf að fara í gegnum eftirfarandi atriði:
Umhverfisstofnun innheimtir eftirfarandi gjöld vegna stofnunar vörslureiknings rekstraraðila í skráningakerfinu. Upphæðir má finna í nýjustu gjaldskrá Umhverfisstofnunar hverju sinni.
Árgjald vegna reiknings reiknast frá þeim degi þegar reikningur er stofnaður. Eingöngu er heimilt að innheimta árgjald margfaldað með X/365 þar sem X stendur fyrir fjölda þeirra daga sem eftir eru í viðkomandi ári þegar reikningur er stofnaður.
Umhverfisstofnun gefur út og sendir reikning á umsækjendur vörslureiknings rekstraraðila í skráningarkerfinu. Ekki er unnt að opna vörslureikning rekstraraðila fyrr en greiðsla hefur borist.
Eftirfarandi gögn þurfa að berast Umhverfisstofnun áður en vörslureikningur rekstraraðila í skráningakerfinu er opnaður.
Öll tilskilin skjöl skulu send rafrænt til Umhverfisstofnunar, netfangið: ets-registry@ust.is. Ef pappírseintak er einnig sent má senda það á:
Umhverfisstofnun
Berist til: Skráningakerfi ETS
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Frá því að öll tilskilin gögn hafa borist til Umhverfisstofnunar getur tekið allt að 20 virka daga að opna vörslureikning rekstraraðila í skráningakerfinu eða láta umsækjanda vita sé umsókn ófullnægjandi.
Nánari upplýsingar í síma 591 2000 eða netfang ets-registry@ust.is.