Almennt

Snyrtivörur er fjölbreyttur vöruflokkur (sjá skilgreiningu hér að neðan) og gilda ákveðnar reglur um markaðssetningu þeirra, sem eiga að tryggja gæði og lágmarka neikvæð áhrif sem geta fylgt notkun þeirra. Umhverfisstofnun fer með framkvæmd snyrtivörureglugerðar hér á landi en heilbrigðisnefndir sveitarfélaga gefa út starfsleyfi fyrir snyrtivöruframleiðslu.

Reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009. Reglugerðin gerir kröfur til framleiðenda og innflytjenda um að sýna fram á öryggi snyrtivara og tilkynna um óæskileg áhrif af völdum þeirra. Snyrtivörur skulu hafa tilgreindan ábyrgðaraðila á Evrópska efnahagssvæðinu (sjá síðuna Framleiðsla og markaðssetning) og þær skulu skráðar í snyrtivöruvefgátt ESB áður en til markaðssetningar innan Evrópska efnahagssvæðisins kemur.

Skilgreining á snyrtivörum

  • Snyrtivörur eru efni eða efnablöndur sem ætlaðar eru til notkunar á mannslíkamann s.s. hörund, hár, neglur, varir, ytri kynfæri, tennur eða slímhimnu í munni. Snyrtivörum er einkum ætlað að hreinsa, breyta útliti, veita ilm, bæta líkamsþef eða vernda og halda líkamshlutum í góðu ástandi. Snyrtivörur mega ekki, við eðlilega notkun, vera skaðlegar heilsu manna.
  • Eftirtalin efni og vörur teljast ekki vera snyrtivörur: Efni og vörur til notkunar í læknisfræðilegum tilgangi, ýmis efni sem ætluð eru til notkunar til þess að meðhöndla sjúkdóma, verki eða veikindi, efni sem sprautað er undir húð, sótthreinsivörur, lyf, húðflúrunarlitir, lúsameðul og ýmislegt fleira.

 Leiðbeinandi listi yfir snyrtivörur útfrá hlutverki þeirra

  1. Krem, fleyti, húðmjólk, hlaup og olíur fyrir húð (hendur, andlit, fætur o.s.frv.).
  2. Andlitsmaskar.
  3. Lituð dagkrem (fljótandi, pasti, púður).
  4. Förðunarpúður, baðpúður, hreinlætispúður o.s.frv.
  5. Handsápa, ilmsápa o.s.frv.
  6. Ilmvatn, snyrtivatn og kölnarvatn.
  7. Bað- og steypibaðsvörur (sölt, froða, olía, hlaup o.s.frv.).
  8. Háreyðingarvörur.
  9. Lyktareyðir, svitalyktareyðir.
  10. Hársnyrtivörur; hárlitunar- og aflitunarvörur, hárliðunar- og afliðunarvörur, festir, hárlagningarvörur, hárhreinsivörur (vökvi, hárhreinsiduft, hárþvottalögur), hárnæringarvörur (vökvi, krem, olía), hárgreiðsluvörur (vökvi, hárlakk, hárgljái).
  11. Rakstursvörur (sápa, froða, vökvi o.s.frv.).
  12. Andlits- og augnförðunarvörur og viðeigandi hreinsiefni.
  13. Varaáburður.
  14. Vörur til tann- og munnhirðu.
  15. Naglasnyrtivörur og naglalakk.
  16. Vörur fyrir viðkvæm þrif útvortis.
  17. Sólbaðsvörur.
  18. Brúnkukrem án sólar.
  19. Efni til að lýsa húð.
  20. Efni sem vinna gegn hrukkum.

Viðaukar

Við snyrtivörureglugerðina eru tíu viðaukar. í átta þeirra er lýst kröfum sem varða markaðssetningu snyrtivara. Mikilvægt er að markaðssetjendur kynni sér þessar kröfur. Umfjöllunarefni viðaukanna eru sem hér segir:

  • I. viðauki: Öryggisskýrsla um snyrtivörur
  • II. viðauki: Efni sem eru bönnuð í snyrtivörum
  • III. viðauki: Efni sem leyfilegt er að nota í snyrtivörum með skilyrðum
  • IV. viðauki: Litarefni sem leyfilegt er að nota í snyrtivörum
  • V. viðauki: Rotvarnarefni sem leyfilegt er að nota í snyrtivörum
  • VI. viðauki: Efni til síunar útfjólublárra geisla sem leyfilegt er að nota í snyrtivörum
  • VII. viðauki: Tákn sem eru notuð á umbúðum/pakkningum
  • VIII. viðauki: Staðgönguaðferðir fyrir prófanir á dýrum