Umhverfistofnun - Logo

Stjórnunar- og verndaráætlanir í kynningarferli

Í stjórnunar- og verndaráætlunum friðlýstra svæða er meðal annars fjallað um nauðsynlegar verndaraðgerðir, landvörslu og landnýtingu, s.s. aðgengi ferðamanna að svæðinu, stígagerð og uppbyggingu þjónustumannvirkja. 

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd ber Umhverfisstofnun m.a. ábyrgð á gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir friðlýst svæði. Árið 2012 var gefin út Handbók um stjórnun friðlýstra svæða í umsjón Umhverfisstofnunar . Tilgangur handbókarinnar er að vera stjórntæki Umhverfisstofnunar varðandi verndun og nýtingu friðlýstra náttúruminja í umsjón stofnunarinnar og vera rammi fyrir gerð verndar- og stjórnunaráætlana auk þess sem skilgreind eru verkfæri sem nota má við áætlanagerðina.

Umhverfisstofnun leggur fram til kynningar drög að stjórnunar- og verndaráætlunum svo almenningur og hagsmunaaðilar eigi þess kost að koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum við áætlanirnar. Auglýsingarferlið stendur í sex vikur.

Hér má sjá þær stjórnunar- og verndaráætlanir sem eru í kynningu hjá Umhverfisstofnun hverju sinni.