Tilgangur og markmið:
Framkvæmd og helstu niðurstöður:
Farið var í eftirlit þann 25. maí 2020 hjá fyrirtækjum sem setja plöntuverndarvörur á markað. Úrtakið í eftirlitinu náði til 41 mismunandi plöntuverndarvara í heild. Allar plöntuverndarvörur sem fundust í sölu hjá fyrirtækjunum voru kannaðar með tilliti til markaðsleyfa, sbr. reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur og merkinga á umbúðum varanna sbr. reglugerð nr 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna eða efnablandna, reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur og reglugerð nr. 1002/2014 um gagnkvæma viðurkenningu á tilteknum markaðsleyfum fyrir plöntuverndarvörum.
Eftirfarandi eftirlitsþegar féllu undir umfang verkefnisins:
Fyrirtæki | Starfsemi |
Samhentir Kassagerð ehf. | Innflutningur, heildsala |
Garðheimar Gróðurvörur ehf. | Innflutningur, heildsala, smásala |
Byko ehf. | Smásala |
Streymi heildverslun ehf | Innflutningur, heildsala |
Samtals voru skoðuð 59 eintök af plöntuverndarvörum í eftirlitinu og þar af fundust eitt eða fleiri frávik við 7 vörur. Þetta þýðir að tíðni frávika var um 12%. Gerðar voru kröfur um úrbætur vegna ófullnægjandi merkinga á þessum 7 vörum og hafa fyrirtækin brugðist við þeim.