Algengasta aðkomuleiðin á Hornstrandir er af sjó. Boðið er upp á áætlunarferðir frá Ísafirði, Bolungarvík og Norðurfirði á Ströndum inn í friðlandið. Einnig er hægt að koma landleiðina og ganga þá frá Ófeigsfirði á Ströndum annarsvegar eða frá Dalbæ á Snæfjallaströnd.
Samkvæmt aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar eru tvö óskráð lendingar- og flugtakssvæði án nokkurs búnaðar, á Látrum í Aðalvík og í Fljótavík. Óheimilt er að lenda þyrlum innan friðlandsins.
Á þeim tíma þegar gróður, lífríki og gönguslóðar eru viðkvæmir þarf að tilkynna Umhverfisstofnun rafrænt um allar ferðir í friðlandið, eða frá tímabilinu 1. mars til 15. júní og frá 1. september til 1. nóvember ár hvert. Þessi tilkynningarskylda tekur þó ekki til ferða hús- og landeigenda.
Helstu gönguleiðir á Hornströndum eru varðaðar en gestum getur auðveldlega yfirsést vörður á ókunnum slóðum og því er brýnt að hafa meðferðis gott kort og áttavita, eða GPS tæki til rötunar.
Þokusælt er á svæðinu og stundum vandratað. Ár geta verið erfiðar yfirferðar í miklum vatnaveðrum og talsverður snjór er á hálendi svæðisins allt árið um kring. Skaflar geta verið brattir og þá ekki síst snemmsumars. Það er mikilvægt að gæta ávallt varúðar, ekki síst ef skyggni er slæmt.
Áður en lagt er af stað í gönguferð á Hornstrandir er mikilvægt að undirbúa sig vel. Nauðsynlegt er að taka með sér góð kort og kynna sér leiðarlýsingar sem hafa verið gefnar út, skoða veðurspár og skilja eftir ferðaáætlun. Ferðaáætlun er hægt að skila inn á Safetravel – www.safetravel.is
Veður geta verið margbreytilegt á svæðinu og veðurskipti tíð. Nálægð við opið úthaf hefur mikil áhrif og þoka og kuldi getur lagst fyrirvaralaust yfir. Ávalt skal reikna með tíðum og snöggum veðrabreytingum yfir daginn og skal miða skjólfatnað og útbúnað við það.
Ferðamenn verða að hafa með sér tjöld og góðan klæðnað, vatnsheldur fatnaður er mjög mikilvægur. Allan mat þarf að taka með sér. Gera þarf ráð fyrir að ferðaáætlun standist ekki og menn tefjist, því skal pakka með aukamáltíð.
Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Umhverfisstofnun og Upplýsingamiðstöð ferðamála á Ísafirði og á Hólmavík.
Aðeins er heimilt að tjalda á skilgreindum tjaldsvæðum innan friðlandsins. Á Hornströndum eru fjórtán tjaldstaðir á vegum Umhverfisstofnunar og tveir að auki einkareknir þar sem heimilt er að talda. Við tjaldstaðina eru ýmist þurrsalerni eða vatnssalerni.
Landeigendum er heimilt að leyfa tjöldun á sínu landi og sjá þá gestum sínum fyrir hreinlætisaðstöðu.
Vegna gróðurverndar er aðeins heimilt að hafa tjald innan tiltekins tjaldstaðar í eina viku í senn, að þeim tíma liðnum er gestum skylt að færa tjaldið innan tjaldstaðarins eða taka það niður.
Umhverfisstofnun er með aðstöðu fyrir landverði sína á tjaldstöðunum í Höfn í Hornvík og á Hesteyri og þeir eru gestum svæðisins þar til upplýsingagjafar.
Á Hesteyri er rekin ferðaþjónustua í Læknishúsinu öll sumur, þar er hægt að kaupa bæði gistingu og veitingar.
Í Hornbjargsvita er Ferðafélag Íslands með rekstur frá lokum júní og fram í ágúst