Eftirlit með merkingum og umbúðum uppkveikivökva fyrir grill

Inngangur

 Verkefni þetta nær til uppkveikivökva fyrir grill sem eru á markaði hér á landi og skylt er að merkja vegna þess að þeir innihalda hættuleg efni. Um merkingar á vörum sem innihalda hættuleg efni gildir reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablanda, en hún innleiðir hér á landi reglugerð (EB) nr. 1272/2008 sama efnis. Gerð er krafa um að merkingar vara sem heyra undir reglugerðina séu á íslensku. Jafnframt er gerð krafa um barnheld öryggislok og áþreifanlega viðvörun á umbúðum þessara vara ef þær eru ætlaðar eru til almennra nota.


Tilgangur

  •  Að athuga hvort fylgt sé ákvæðum reglugerða um merkingar og umbúðir uppkveikivökva fyrir grill sem eru á markaði hér á landi. 
  • Að upplýsa birgja og söluaðila um reglur sem gilda um merkingar á vörum sem innihalda hættuleg efni.
  • Að auka neytendavernd.

Framkvæmd

 Í lok maí 2019 var farið í eftirlit til 7 birgja sem samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofnunar eru að markaðssetja uppkveikivökva, eða á staði þar sem vörur þeirra voru í boði. Í eftirlitinu  voru skoðaður alls 9 vörur og athugað hvort fylgt væri ákvæðum ofangreindra reglugerða varðandi merkingar þeirra og umbúðir.

Niðurstöður

 Til þess að fá mynd af alvarleika frávikanna voru þau flokkuð í þrjú stig eins og sýnt er í 1. töflu, þar sem 1. stig er minnst alvarlegt og 3. stig mest alvarlegt. Ef frávik við merkingar telst vera á 1. stigi þarf að senda Umhverfissstofnun tillögu að fullnægjandi úrbótum en ekki þarf að endurmerkja vörur sem þegar eru komnar í sölu. Við frávik á 2. stigi þarf líka að senda Umhverfisstofnun tillögu að fullnægjandi úrbótum og auk þess að endurmerkja allar vörur sem þegar eru í sölu í samræmi við þær. Falli frávik undir 3. stig krefst Umhverfisstofnun tímabundinnar stöðvunar á markaðssetningu vörunnar sem um ræðir, þar til úrbætur hafa átt sér stað.  

Engar af þeim vörum sem skoðaðar voru reyndust vera með öllu frávikalausar en frávikin voru misalvarlegs eðlis. 

  • Frávik á 3. stigi:
             o    þrjár af vörunum vantaði alfarið merkingar íslensku og voru þær á ensku,
             o    á tveimur vörum voru gerðar alvarlegar athugasemdir við orðalag hættumerkinganna.
  • Frávik á 2. stigi:
             o    eina vöru vantaði áþreifanlega viðvörun.
  • Frávik á 1. stigi:
             o    við eina vöru voru gerðar minniháttar athugasemdir við orðalag hættumerkinganna,
             o    í einu tilviki var íslenskur merkimiði án hættumerkis límdur yfir hluta hættumerkis sem fyrir var á umbúðum.
             o    eina vantaði upplýsingar um símanúmer birgis. 
  • Allar voru vörurnar með barnheld öryggislok.

Í 2. töflu má sjá undir hvaða alvarleikastig vörur hjá hverjum og einum birgjanna í eftirlitinu lentu, en 5 vörur (56%) féllu undir 3. stig, 1 vara (11%) undir 2.stig og 3 vörur (33%) undir 1. stig. Í samræmi við flokkun frávika greip Umhverfisstofnun til þess úrræðis að stöðva markaðssetningu á 5 vörum tímabundið, þar til búið væri að gera fullnægjandi úrbætur á merkingum.

 
 Birgjarnir brugðust allir vel við kröfum Umhverfisstofnunar um úrbætur og urðu við þeim á fullnægjandi hátt.