Öll umferð og landtaka skipa og báta innan friðlandsins er óheimil. Undanskilið banninu er eftirfarandi:
- Umferð og landtaka vegna hefðbundinna nytja og hlunninda.
- Umferð landeigenda sem er ekki í atvinnuskyni.
- Umferð skipa og báta vegna hefðbundinna veiða í sjó með handfæri.
- Umferð kajaka. Kajakræðarar skulu tilkynna Umhverfisstofnun um ferðir sínar undir Látrabjarg áður en þeir leggja af stað.
- Umferð og landtaka vegna rannsókna.
- Umferð skipa og báta sem leita vars undir Látrabjargi vegna veðurs og sjólags.
- Umferð skipa og báta er heimil eftir hefðbundnum siglingaleiðum vestur frá Bjargtöngum og um Látraröst vegna öryggis sjófarenda.
Hnit sjófarenda, Látrabjarg