Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir áform um útgáfu bráðabirgðaheimildar fyrir Sláturfélag Suðurlands svf. vegna sláturhúss þeirra á Selfossi.

Sláturfélag Suðurlands óskar eftir bráðabirgðaheimild til að hægt sé að halda áfram starfsemi á meðan starfsleyfi er í vinnslu. Umhverfisstofnun er heimilt skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 að veita rekstraraðila bráðabirgðaheimild að uppfylltum skilyrðum. 

Athugasemdafrestur við auglýsinguna er til og með 26. apríl 2024. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið ust@ust.is merktar UST202404-133.