Stök frétt

Umhverfisstofnun áformar að framlengja starfsleyfi Steinullar hf.á Sauðárkróki, sem gildir fyrir rekstur steinullarverksmiðju. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 1. maí 2025.
 
Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun, ust@ust.is, merkt UST202103-269. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 15. apríl 2024.
 
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja.