Stök frétt

Mynd fengin af heimasíðu rekstraraðila
Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Stjörnueggja hf. Vallá, Kjalarnesi, vegna reksturs eggjabús. 

Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfisstofnunar 3. nóvember sl. til og með 10. nóvember.

Framlenging á starfsleyfi Stjörnuegg hf. er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 15. nóvember 2024.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um framlengingu starfsleyfis