Stök frétt

Mynd fengin af heimasíðu rekstraraðila
Áform um framlengingu á starfsleyfi Stjörnueggja hf. Vallá, Kjalarnesi
Umhverfisstofnun áformar að framlengja starfsleyfi Stjörnueggja hf á Vallá, Kjalarnesi, sem gildir fyrir eggjabú með allt að 50.000 stæðum fyrir varphænur. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 15. nóvember 2024.
 
Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202310-078. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. nóvember n.k.

Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja.