Kalmanshellir er í Hallmundarhrauni og var friðlýstur 2011. Hellakerfið er um 4 km og er friðlýst sem náttúruvætti. Kalmanshellir er lengsti hraunhellir sem vitað er um. Hellirinn er afar margbreytilegur en þar skiptast á víðir geimar og þröngar rásir, töluvert mörg op er á yfirborðinu. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda einstæðar jarðmyndanir hellisins og hellakerfið allt og koma í veg fyrir skemmdir á jarðmyndunum.
Aðgengi
Umferð um hellinn er háð sérstöku leyfi Umhverfisstofnunar. Hluti hellisins er lokaður öllum og umferð alfarið óheimil nema brýnir almannahagsmunir séu í húfi að mati Umhverfisstofnunar og umsjónaraðaðila.