Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Samnorrænt eftirlitsverkefni með PFAS efnum í textíl í umhverfi barna

Umhverfis- og orkustofnun hyggst á fyrra hluta árs 2026 að ráðast í eftirlit með textílvörum sem ætlaðar eru börnum. Markmið eftirlitsins er að kanna hvort tiltekin bönnuð innihaldsefni sem tilheyra hópi per- og pólýflúoraðra alkýlefna (PFAS) séu til staðar. Jafnframt verður skimað fyrir öðrum PFAS-efnum sem ekki hafa enn verið bönnuð en eru til skoðunar hjá Efnastofnun Evrópu með tilliti til mögulegra takmarkana í framtíðinni. 

Verkefnið er hluti af norrænu samstarfi sem er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni. Markmið verkefnisins er að auka vitund um PFAS-efni og tryggja að farið sé að gildandi takmörkunum.* 

Samstarfið felur í sér mikilvægan ávinning, meðal annars með því að efla sérfræðiþekkingu, samræma eftirlitsaðferðir og styrkja eftirfylgni með reglum um PFAS-efni. Verkefnið miðar jafnframt að því að upplýsa norræna markaðssetjendur um þær reglur sem gilda um efnin og um væntanlegar breytingar á þeim. 

Markmið efnalaga er að fyrirbyggja skaðleg áhrif efna á heilsu manna, aðrar lífverur og umhverfið. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á vörur fyrir börn, einkum yngstu börnin. Þau eru viðkvæmari fyrir áhrifum efna en fullorðnir, eru í meiri snertingu við textílvörur og hafa tilhneigingu til að setja hluti upp í sig eða naga þá, sem getur aukið útsetningu þeirra fyrir skaðlegum efnum. 

 

Umfjöllun um PFAS efni 

Almennt um þrávirk lífræn efni 

Almennt um REACH 

 

* Takmarkanir varðandi PFAS-efni er að finna í reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni (POPs) og reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).