Veiðifrétt

15.09.2019 03:50

15. sept 2019 seinasti dagur tarfatímabils.

Nú hefur stytt upp og sólin skín. Það ætti að veiðast vel í dag. Siggi Aðalsteins með einn að veiða tarf á sv. 1, fellt við Lindará, Benni Óla með tvo að veiða kýr á sv. 1, fellt við Mælifell, Emil Kára með þrjá að veiða kýr á sv. 1, Henning með einn að veiða kú á sv. 1, fellt við Mælifell, Pétur með þrjá að veiða kýr á sv. 1, tvær felldar norðan við Háganga, Jónas Hafþór með þrjá að veiða kýr á sv. 2, bætti einum við með kú, fellt í Flatarheiði, Alli Hákonar með einn að veiða kú á sv. 2, fellt austan við Fjallaskarð, Björn Ingvars með einn að veiða kú á sv. 2, fellt við Fjallaskarð, Óli Gauti með tvo að veiða kýr á sv. 2, fellt inn með Folavatni, Bergur með einn að veiða tarf á sv. 2, fellt vestan við Hornbrynju, Einar Eiríks með tvo að veiða kýr á sv. 2, fellt við Fjallaskarð, Einar Axels með einn að veiða kú á sv. 2, Ívar Karl með þrjá að veiða kýr á sv. 3, og bætti við einum með tarf, fellt í Borgarfirði, Jón Egill með þrjá að veiða kýr á sv. 3, fellt í Borgarfirði, Ólafur Örn með þrjá að veiða kýr á sv. 3, fellt í Borgarfirði, Stebbi Kr. með tvo að veiða kýr á sv. 3, fellt í Borgarfirði, Ívar Karl með þrjá að veiða kýr á sv. 4 síðdegis fellt í Asknesdal og undir Reykjasúlu, Sævar með þrjá að veiða kýr á sv. 5, bætti einum við, fellt í Vöðlavík, Albert með einn að veiða kú á sv. 6, fellt vestan við Ódáðavötn, Siggi Einars með einn að veiða kú á sv. 6, fellt í Stöðvarfirði, Eiður Gísli með þrjá að veiða kýr á sv. 7, fellt í Leirdalshrauni, Gunnar Bragi með einn að veiða kú á sv. 7, fellt í Geithellnadal, Skúli Ben. með tvo að veiða kýr á sv 7, fellt Leirdalshrauni, Þorri Magg með tvo að veiða kýr á sv 7, fellt á Öxi, Frosti með einn að veiða kú á sv. 6, fellt á Öxi.
Til baka