Frétt

Dregið verður úr umsóknum um hreindýraveiðileyfi í beinni útsendingu laugardaginn 5. mars klukkan 14.00. Útdrátturinn verður sendur út hér á vefsíðu Umhverfisstofnunar en hann fer fram í húsnæði Austurbrúar Tjarnarbraut 39 á Egilsstöðum í og veiðimönnum er velkomið að fylgjast með á staðnum.

Breytilegt er eftir svæðum hvaða líkur menn hafa á að fá úthlutað veiðileyfi en alls bárust 3199 umsóknir, þar af 3183 gildar. Alls eru 81 veiðimaður á svonefndum fimm skipta lista. Hafi veiðimaður ekki fengið úthlutað leyfi fimm ár í röð fer hann í forgang á biðlista fái hann ekki úthlutað þegar dregið er í sjötta skipti. Kvótinn í ár er samtals 1300 dýr, 452 tarfar og 848 kýr.

Fyrirkomulag útdráttarins er einfalt. Allir sem sækja um fá úthlutað handahófskenndu númeri í útdrættinum sem getur verið á bilinu 1 til 100.000. Þeir sem fá lægstu númerin ganga fyrir í útdrættinum á hverju veiðisvæði fyrir sig. Ef kvótinn hljóðar upp á 100 dýr á svæðinu eru það einfaldlega þeir sem eru með 100 lægstu númerin sem fá veiðileyfi. Röð á biðlista ræðst af sama fyrirkomulagi.

Vakin er sérstök athygli á að að greiða þarf veiðileyfið að fullu ekki síðar en 15. apríl. Tilgangurinn er að hægt sé að byrja fyrr að úthluta veiðileyfum af biðlista.

Allir sem fá úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfa einnig að standast skotpróf fyrir 1. júlí en heimilt er að reyna þrisvar sinnum við skotprófið. Standist menn ekki skotprófið er veiðileyfinu úthlutað til næsta manns á biðlista.

Að loknum útdrætti er hægt að sjá niðurstöðu útdráttar í Þjónustugátt- Mínar síðar auk þess að tölvupóstur verður sendur á umsækjendur á mánudag. Útsending frá útdrættinum hefst laugardaginn 4. mars klukkan 14.00 og hægt verður að fylgjast með hér að neðan.