Almennar fréttir og tilkynningar

Eindagi greiðslu úthlutaðs hreindýraveiðileyfis

Eindagi greiðslu úthlutaðra hreindýraveiðileyfa er mánudagurinn 15.apríl. Borga þarf kröfu í heimabanka fyrir kl. 21.00 mánudaginn 15. apríl en krafan hverfur þá úr bankanum. ...

Útdráttur fyrir hreindýraveiðileyfi á föstudaginn

Umsóknarfrestur um veiðileyfi fyrir hreindýr rann út á miðnætti fimmtudaginn 29. febrúar síðastliðinn. Dregið verður úr umsóknum um hreindýraveiðileyfi í beinu streymi föstudaginn 15. mars klukkan 17.00. Útdrættinum verður streymt hér á vefsíðu Umhverfisstofnunar en hlekkur á streymið verður birtur hér þegar þar að kemur. ...

Umsóknarfrestur um hreindýraveiðileyfi rennur út fimmtudaginn 29. febrúar

Umsóknafrestur um veiðileyfi á hreindýr rennur út á miðnætti á fimmtudaginn, þann 29. febrúar. Hægt er að sækja um leyfi í gegnum þjónustugátt Umhverfisstofnunar og fólki bent á að til að umsókn sé tekin gild þurfa umsækjendur að ganga úr skugga um að hafa hreindýraheimild á veiðikortinu sínu. ...

Hreindýraveiðikvóti ársins 2024

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur auglýst hreindýraveiðikvóta ársins 2024. Umsóknarfrestur er 29. febrúar. ...

Upphaf hreindýraveiðitímabils 2023

Tarfaveiðar hefjast laugardaginn 15. júlí. Við vekjum athygli á því að veturgamlir tarfar eru alfriðaðir. ...

Opið fyrir skráningu á haustnámskeið

Opið er fyrir skráningu á skotvopnanámskeið og veiðikortanámskeið fyrir haustönn 2023. ...

Umsóknarfrestur um hreindýr rennur út í dag

Umsóknafrestur um veiðileyfi á hreindýr rennur út á miðnætti í dag, þriðjudaginn 28. febrúar. Hægt er að sækja um leyfi í gegnum þjónustugátt Umhverfisstofnunar og fólki bent á að til að umsókn sé tekin gild þurfa umsækjendur að ganga úr skugga um að hafa hreindýraheimild á veiðikortinu sínu. ...

Hreindýraveiðikvóti ársins 2023

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur auglýst hreindýraveiðikvóta ársins 2023. Heimilt er að veiða allt að 901 hreindýr árið 2023, 475 kýr og 426 tarfa. ...

Hreindýraveiðum haustsins lokið

Hreindýraveiðitímabili haustsins lauk þriðjudaginn 20. september. Veiðar gengu í heild vel og tókst að veiða stærsta hluta útgefins veiðikvóta, þar hjálpaði gott veður síðustu vikur veiðitímabilsins vissulega til. ...

Hreindýraveiðar - erfið staða á veiðisvæði 2

Um miðjan ágúst var ljóst að mjög fá hreindýr höfðu sést á veiðisvæði 2 og í kjölfarið ákvað Umhverfisstofnun í samráði við Náttúrustofu Austurlands, hreindýraráð og Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum að nauðsynlegt væri að grípa til eftirfarandi aðgerða ...