Stök frétt

Umhverfismerkið Svanurinn hefur innleitt ný viðmið fyrir Svansvottun nýbygginga

Af því tilefni efnum við til opinnar kynningar í beinu streymi þriðjudaginn 28. mars kl. 11.

Hlekkur á streymi: www.ust.is/ny-vidmid-fyrir-nybyggingar 

Umfjöllunarefni

  • Kynning á nýjum viðmiðum - útgáfa 4
  • Helstu breytingar frá útgáfu 3
  • Skyldu- og valkröfur viðmiðanna
  • Spurningar

Farið verður yfir allar kröfur nýju viðmiðin og þær áherslubreytingar sem hafa orðið frá fyrri viðmiðum. Einnig verður farið yfir tímasetningar í tengslum við umsóknir sem berast og hversu lengi er hægt að sækja um í eldri útgáfu viðmiðanna.

Fyrir hverja?

  • Verktaka
  • Byggingarstjóra
  • Verkstjóra
  • Hönnuði
  • Iðnmeistara
  • Gæðastjóra
  • Umhverfisstjóra
  • Aðra áhugasama sem hafa áður unnið að Svansvottuðum byggingum eða hyggjast stefna á slíkt í framtíðinni

Senda inn spurningu

Við hvetjum áhugasama til að senda inn spurningar og vangaveltur varðandi nýju viðmiðin. Við reynum svo að móta kynninguna eftir því.

Senda inn naflausa spurningu 

Fyrirlesarar

Bergþóra Kvaran og Guðrún Lilja Kristinsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun, sjá um kynninguna. 

Tengt efni: