Stök frétt

Mynd: Unsplash

Raki og mygla í mannvirkjum hefur valdið gífurlegu tjóni. Bæði fjárhagslegu og heilsufarslegu. Það er mikilvægt að bregðast hratt við og setja rakaforvarnir í forgang við byggingu húsnæðis. 

Svansvottaðar byggingar og endurbætur uppfylla kröfur um rakaforvarnir á hönnunar- og byggingartíma.  

Kröfurnar kveða á um að skipa skuli rakavarnarfulltrúa sem uppfyllir ákveðin skilyrði um reynslu og menntun og skal hann sjá um að setja upp rakavarnaráætlunina. Verktaka er svo skylt að fara eftir áætluninni undir eftirliti rakavarnarfulltrúa. Í rakavarnaráætluninni þarf að koma fram: 

  • Val á efni og tækni sem hafa áhrif á raka og rakavarnir. 
  • Að byggingarefni sé varið á byggingarstað. 
  • Áætlaður útþornunartími mismunandi byggingarhluta. 
  • Tryggja þornun byggingarefna. 
  • Ákvarða hæsta leyfilega rakastig byggingarefnis. 

Eigendur og notendur Svansvottaðra bygginga geta treyst því að fagaðili hafi gengist í ábyrgð fyrir rakavarnir, rétt eins og venjan er að fagaðili taki ábyrgð á að burðarvirki bygginga sé í lagi. Svanurinn er gæðastimpill sem tryggir heilnæmt inniloft fyrir íbúa og notendur húsnæðisins. Þar að auki er fjárhagslegur ávinningur öflugra rakavarna ótvíræður.  

Nýlega birtust fréttir af því að mygla eða rakavandamál hafi komið upp í 27 skólum og leikskólum í Reykjavík frá árinu 2018. Þessu vandamáli fylgir mikið rask sem hefur áhrif á um 1200 börn sem hafa búið við óstöðugleika í skólahúsnæðismálum á tímabilinu. Mikil og langdregin veikindi geta einnig fylgt rakavandamálum og af þeim hlýst afleiddur kostnaður fyrir heilbirgðiskerfið og samfélagið í heild.  

Lærum af reynslunni og tökum betri ákvarðanir í dag fyrir framtíðina. Það er til mikils að vinna með því að bæta rakaforvarnir íslenskra bygginga. Við þurfum ekki að finna upp hjólið.

Öllum velkomið að kynna sér viðmið Svansins um nýbyggingar og endurbætur á: www.svanurinn.is/byggingar.