Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Primex ehf. um breytingu á starfsleyfi sínu. Sótt erum heimild til að framleiða sýru og basa með rafgreiningu á salti.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að starfsemin kalli ekki á málsmeðferð á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Í framhaldi verður unnin tillaga að starfsleyfi og gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur þegar hún liggur fyrir.

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.