Stök frétt

Mynd tekin af vef Sorpu

SORPA bs. sótti um breytingu á starfsleyfi sínu til urðunar úrgangs í Álfsnesi. Óskað er eftir breytingu á gildistíma heimildar til urðunar sem hefur í núverandi leyfi takmarkaðan gildistíma. Gildistími núverandi heimildar til urðunar fellur úr gildi í lok árs 2020 en sótt er um heimild til áframhaldandi urðunar út árið 2023.

Umhverfisstofnun hefur nú unnið tillögu að breytingu á starfsleyfi byggðasamlagsins í samræmi við erindið. Við breytingu starfsleyfisins voru reglugerðartilvísanir einnig uppfærðar eftir því sem við átti.

Athugasemdir við breytingatillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 17. desember 2020. Greinargerð mun fylgja starfsleyfinu við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Starfsleyfi til auglýsingar