Stök frétt

Umhverfisstofnun tók þann 6. júní 2019 ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Lindarfisk ehf. til framleiðslu á allt að 300 tonnum af bleikju að Botnum í Meðallandi. Lindarfiskur ehf. hefur verið með starfsleyfi til framleiðslu á 20 tonnum af bleikju á ári á sama stað.

Unnið hefur verið með Matvælastofnun að samræmingu við leyfisútgáfu rekstrarleyfis, en leyfin eru afhent rekstraraðila samtímis skv. 3. mrg. 4. gr. b. laga nr. 71/2008 um fiskeldi.

Skipulagsstofnun mat það svo að framkvæmdin þyrftir ekki í mat á umhverfisáhrifum samkvæmt ákvörðun frá 4.júlí 2017. í niðurstöðu stofnunarinnar segir að fyrirhuguð stækkun á eldinu sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif með tilliti til eðlis framkvæmdarinnar, staðsetningar hennar og eiginleika hugsanlegra áhrifa hennar, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Greinargerð fylgir starfsleyfinu sbr. 6. gr. rg. nr. 550/2018.

Umhverfisstofnun auglýsti opinberlega tillögu að starfsleyfinu á vefsíðu stofnunarinnar á tímabilinu 15. febrúar 2019 til 18. mars 2019, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Auglýsingin var birt á vefsíðu Umhverfisstofnunar þann 15. febrúar 2019 ásamt gögnum sem lágu til grundvallar tillögunni. Tilkynning um auglýsinguna var m.a. send á umsækjanda, viðkomandi sveitarfélag og heilbrigðisnefnd.

Nánari upplýsingar um mengunarvarnir má sjá í starfsleyfi og nánari upplýsingar um vinnslu starfsleyfis má finna í greinargerð með starfsleyfi.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um útgáfu
Starfsleyfi Lindarfisks
Skipulagsstofnun - Ákvörðun um matsskyldu
Umsókn um starfsleyfi