Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið þann 3. janúar sl. umsókn frá félaginu Laxar fiskeldi ehf. um stækkun stöðvar sinnar að Fiskalóni í sveitarfélaginu Ölfusi. Um er að ræða aukningu á klaki hrogna og aukna framleiðslu á laxaseiðum úr 20 tonnum í 100 tonn á ári. Lífmassi í stöðinni yrði að hámarki 100 tonn á hverjum tíma.

Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

Ákvörðun um matsskyldu