Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram til kynningar tillögu að friðlýsingu háhitasvæðis Kerlingarfjalla á Suðurlandi: 79 Hverabotn, 80 Neðri-Hveradalir, 81 Kisubotnar og 82 Þverfell á grundvelli flokkunar svæðisins í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar (rammaáætlunar), sbr. ályktun Alþingis nr. 13/141, frá 14. janúar 2013.

Frestur til að skila athugasemdum er til og með 3. júní 2020.
Frekari upplýsingar má finna hér. 

Athugasemdum skal skilað inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með bréfpósti; Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.