Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út ráðgefandi álit um endurnýtingu úrgangs fyrir fyrirhugaða framleiðslu GPO ehf. en verkefnið gengur út á framleiðslu á olíu úr plasti. Hráefnið sem ætlað er til vinnslunnar er svokallað bændaplast (rúllubaggaplast). Álit þetta um endurnýtingaraðgerð GPO ehf. snýst um hvort úrgangur hætti að vera úrgangur þegar hann hefur farið í gegnum endurnýtingaraðgerð fyrirtækisins, sbr. reglugerð um endurnýtingu úrgangs.

Umhverfisstofnun telur að GPO ehf. hafi sýnt fram á að framleiðsluvara fyrirtækisins muni geta uppfyllt skilyrði og að fullnægjandi verkferlar verði til staðar til að tryggja að varan uppfylli ávallt settar kröfur ef farið verður eftir tilteknum forsendum sem koma fram í álitinu og ef varan stenst staðla fyrir eldsneyti. Eitt af því sem liggur til grundvallar álitinu er að Umhverfisstofnun metur það svo að samsetning hráefnisins gefi ekki tilefni til að ætla að varan muni innihalda of mikið af mengunarefnum eins og nánar kemur fram í álitinu. Að lokinni endurnýtingaraðgerð er það því álit Umhverfisstofnunar að úrgangurinn sé hættur að vera úrgangur en geti flokkast sem vara, sjá hér

Með viðlíka ráðgefandi áliti stofnunarinnar gefst þeim fyrirtækjum sem framleiða afurðir með því að endurnýta úrgang, tækifæri til að markaðssetja úrgangsafurð sína sem vöru. Þar með opnast leið til að breyta úrgangi aftur í vöru, með endurnýtingaraðgerð, jafnvel þótt ekki liggi fyrir sérstök viðmið um lok úrgangsfasa. Í reglugerð um lok úrgangsfasa koma fram þau sérstöku viðmið um lok úrgangsfasa fyrir tilteknar gerðir brotajárns, glerbrot og koparrusl. Tilgangur þess að skera úr um lok úrgangsfasa er að stuðla að hringrænu hagkerfi og sjálfbærari auðlindanýtingu þar sem hráefni haldast innan hagkerfisins. 

Við gerð ráðgefandi álits tekur Umhverfisstofnun einkum mið af eftirfarandi fjórum matsþáttum, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 1078/2015: 

  1. Að úrganginum verði breytt í vöru sem hægt sé að setja á markað.
  2. Að hægt sé að nota úrganginn sem fer í gegnum endurnýtingaraðgerð á sambærilegan hátt og sambærilega vöru á markaði sem hefur ekki verið unnin úr úrgangi.
  3. Að hægt sé að geyma úrganginn sem fer í gegnum endurnýtingaraðgerð og nota hann á þann hátt að hann valdi ekki verri umhverfisáhrifum en sambærileg vara á markaði sem hefur ekki verið unnin úr úrgangi.
  4. Að umsækjandi tryggi að varan uppfylli ávallt settar kröfur.


Umsækjendum ber að skila inn ítarlegum upplýsingum um endurnýtingarferli sitt, þann úrgang sem á að endurnýta og framleiðsluvöruna svo unnt sé að veita ráðgefandi álit byggt á ofangreindum matsþáttum.