Stök frétt

Dagana 16.-24. nóvember næstkomandi stendur Evrópsk nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs. Þema þessa árs er fræðsla og miðlun um úrgangsmál undir slagorðinu Minni sóun - minna sorp. Fyrirtæki, stofnanir og almenningur eru hvött til þess að fræðast um úrgangsmál og koma þeirri þekkingu í framkvæmd með því að breyta daglegum neysluvenjum sínum og draga þannig úr myndun úrgangs.

Á heimasíðu Umhverfisstofnunar má finna alls kyns upplýsingar og fróðleik um úrgangsmál, eins og tölfræði um úrgangsflokka og hvernig okkur gengur að uppfylla sett markmið, stefnu ríkis og sveitafélaga í úrgangsmálum, áhugaverðar upplýsingar um flokkun og endurvinnslu og almenna umfjöllun um neyslu og innkaup

 Fyrirtæki og stofnanir sem vilja nýta tækifærið og leggja sitt af mörkum til að fræða starfsfólk og á sama tíma draga úr sóun og myndun úrgangs geta nýtt sér eftirfarandi hugmyndir:
  • Setjið af stað flokkunarkeppni milli hæða, bekkja eða deilda
  • Setjið ykkur markmið um hærra endurvinnsluhlutfall
  • Hádegisfyrirlestur um flokkun 
  • Fá starfsmenn sem huga að minni sóun til að deila reynslu sinni
  • Senda út fróðleiksmola í tölvupósti
  • Setja upp skiptimarkað
  • Mæla matarsóun

Umhverfisstofnun stendur að viðburðum í tengslum við nýtnivikuna, bæði í Reykjavík og á Akureyri, og má nálgast allar upplýsingar um þá á Facebook síðu átaksins.