Stök frétt

Í dag – á degi íslenskrar náttúru – afhenti Rarik formlega íslenska ríkinu jörðina Dynjanda við Arnarfjörð að gjöf. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á móti gjöfinni fyrir hönd ríkisins en innan marka jarðarinnar er náttúruvættið Dynjandi ásamt vatnasviði fossanna í Dynjandisá. Umhverfisstofnun hefur haft Dynjanda í umsjá sinni um árabil.

Dynjandi er meðal hæstu fossa landsins, nær 100 metra hár, og af mörgum talinn ein fegursta náttúruperla Íslands. Hann er einn helsti viðkomustaður ferðamanna á Vestfjörðum. Svæðið við Dynjanda er að mestu ósnortið og einkennist af áhrifum jökla sem hafa sorfið landið og skilið eftir sig einstaklega mikinn fjölda vatna og tjarna á Dynjandisheiði.

Vegna sérstöðu þessa mikilfenglega náttúrvættis og tengingar jarðarinnar við fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, ákvað stjórn RARIK að færa ríkissjóði Íslands jörðina Dynjanda að gjöf á lýðveldisafmælinu. Samhliða því sem jörðin var afhent í dag undirrituðu Guðmundur Ingi og Birkir Jón Jónsson, formaður stjórnar RARIK, samkomulag milli ríkisins og RARIK. Markmið þess er að tryggja útivistar- og náttúruverndargildi jarðarinnar og náttúruvættisins Dynjanda. Dynjandi og aðrir fossar í Dynjandisá ásamt umhverfi þeirra voru friðlýst sem náttúruvætti árið 1981 en af hálfu stjórnvalda er nú stefnt að friðlýsingu allrar jarðarinnar.

Á myndinni tekur umhverfis- og auðlindaráðherra formlega við gjöfinni úr hendi stjórnarformanns Rarik.