Stök frétt

Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður, Vegagerðin og Lögreglan standa fyrir málþingi um akstur á hálendi Íslands á Hótel Selfossi 26. febrúar næstkomandi kl. 17:00-19:00.

Markmiðið með málþinginu er að fræða og ræða hvers vegna umferð um hálendið er takmörkuð á viðkvæmum árstímum. Farið verður yfir mikilvægi þess að  náttúruvernd og ferðaþjónusta vinni saman.

Á vorin, þegar snjóa leysir og frost fer úr jörðu, er mikil hætta á skemmdum á vegum og gróðri. Ótímabær umferð er oft mjög skaðleg, sem dæmi þegar ekið er utan vega til að krækja fyrir skafla og polla.

Ferðamannastaðir á hálendi Íslands eru nú vinsælli en nokkru sinni. Umferð un hálendið yfir vetrartímann hefur stóraukist. Allt of algengt er að ekið sé utan vega á snævi þakinni jörð sem iðulega er ófrosin eða snjóþekja ótraust. Það leiðir af sér að mörg svæði láta mikið á sjá þar sem hjólbarðar hafa markað för í landið.

Mesta hættan á náttúruspjöllum vegna aksturs utan vega á snævi þakinni jörð er á vorin og haustin. Margir ferðamannastaðir á hálendinu eru undir miklu álagi vegna aukins fjölda ferðamanna. Það er því mikilvægt að fræðast og ræða um hvernig draga má úr álagi, stuðla að bættri ferðahegðun og standa saman vörð um náttúru Íslands. Fundarstjóri: Anna Gunnhildur Sverrisdóttir Verkefnastjóri hjá SAF

Dagskrá

17:00-17:05 – Setning málþings

17:05-17:15 – Lokanir hálendisvega og undanþáguveitingar á akstri                    

                            Nicolai Jónasson, Vegagerðin

17:15-17:25 – Áhrif utanvegaaksturs á gróður og jarðveg

                            Anna Sigríður Valdimarsdóttir, Landgræðslan

17:25-17:40 –Akstur á snjó og takmarkanir á umferð á viðkvæmum tíma

                           Hákon Ásgeirsson, Umhverfisstofnun og Fanney Ásgeirsdóttir, Vatnajökulsþjóðgarður

 

17:40-17:55 – Kaffihlé

 

17:55-18:05 – Lög og reglugerðir um akstursbann

                           Sveinn Kristján Rúnarsson, Lögreglan

18:05-18:30 –Verndun náttúru, ábyrgð ferðaþjónustunnar

                          Gunnar Valur Sveinsson, SAF, Samtök ferðaþjónustunnar

  Jón Páll Baldvinsson, FETAR, Félag eigenda torfærutækja í atvinnurekstri

18:30-19:00 –Umræður