Stök frétt

Eins og mörgum veiðimanninum mun kunnugt hefur orðið dráttur á birtingu auglýsingar um hreindýrakvóta ársins 2019. Töfin stafar af því að ráðuneytið er með mál til skoðunar sem tengjast veiðunum og tekur sú athugun tíma.

Nokkuð er um að veiðimenn hafi haft samband við Umhverfisstofnun og lýsi áhyggjum af stuttum umsóknarfresti. Af þeim sökum vill Umhverfisstofnun koma því á framfæri að umsóknarfrestur um hreindýraveiðileyfi verður framlengdur frá því sem verið hefur. Ítarlega verður staðið að kynningu á umsóknarfresti og tímamörkum þegar þar að kemur.

Einnig vill Umhverfisstofnun árétta að þótt ekki sé enn hægt að sækja um hreindýraveiðileyfi vegna fyrrgreindra orsaka er hægt að fara inn á Þjónustugáttina – Mínar síður á ust.is, skila inn veiðiskýrslu og/eða sækja um endurnýjun veiðikorts. Með því má spara tíma áður en opnað verður fyrir umsóknir um veiðileyfi á hreindýrum.