Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi fyrir Hábrún, 410 Hnífsdal. Um er að ræða 700 tonna þorsk og silungseldi í sjókvíum í Skutulsfirði Ísafjarðardjúpi.

Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu. Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.