Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um nýtt starfsleyfi fyrir Arctic Smolt Tálknafirði. Um er að ræða seiðastöð á landi þar sem ætlunin er að rækta allt að 1000 tonn árlega af lax- og regnbogasilungsseiðum. Núverandi starfsleyfi fyrirtækisins heimilar framleiðslu á allt að 200 tonnum af seiðum árlega.

Unnið er úr umsókn og gerð starfsleyfistillögu. Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.