Stök frétt

fiskeldi

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Stofnfisk hf. til framleiðslu á allt að 200 tonnum af laxahrognum, lax til manneldis að Kalmanstjörn.

Tillagan mun liggja frammi á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ, á tímabilinu 6. febrúar til 3. apríl 2017. Á vef Umhverfisstofnunar  má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar og umsóknargögn.

Umhverfisstofnun hefur ekki áform um að halda almennan kynningarfund um tillöguna á auglýsingatíma, en mun endurskoða þá ákvörðun ef eftir því verður óskað.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að gera athugasemdir er til 3. apríl 2017.

Tengd skjöl