Stök frétt

fiskeldi

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Laxar fiskeldi ehf. til framleiðslu á allt að 500 tonnum á ári af laxaseiðum í fiskeldisstöð að Laxabraut 9, Þorlákshöfn.

Tillagan, ásamt fylgiskjölum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu afgreiðslu ráðhúss sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn á tímabilinu 29.desember 2016 – 24.febrúar 2017.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 24.febrúar 2017. Á vef Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar, umsóknargögnin, tilkynningu til Skipulagsstofnunar og matsskylduákvörðun hennar.

Tengd skjöl