Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Arnarlax hf. til framleiðslu á allt að 10.000 tonnum á ári af laxi í Arnarfirði í Vesturbyggð.

Arnarlax hf er með leyfi til eldis á laxi í sjókvíum að 3.000 tonnum á ári í Arnarfirði.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. janúar 2016. Á vef Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar, umsóknargögnin, tilkynningu til Skipulagsstofnunar og matsskylduákvörðun hennar.

Tengd skjöl