Stök frétt

Sunnudaginn 16. júní er dagur hinna villtu blóma haldinn hátíðlegur um allt land. Landverðir við Látrabjarg ætla að bjóða gestum í 2 klst. náttúruskoðunarferð um brúnir Látrabjargs.

Lagt verður af stað frá vitanum á Bjargtöngum kl. 14:00. 

Þetta verður létt ganga og mælst er til að vera vel skóaður og klæða sig eftir veðri. Gott er að hafa meðferðis plöntuhandbók til að greina einstaka plöntur sem verða á vegi okkar og ekki verra að hafa stækkunargler og kíkir.