Stök frétt

28. febrúar nk. kl.18:00 verður opið hús í félagsheimili Patreksfjarðar vegna deiliskipulagsvinnu við Látrabjarg og nágrenni.

Fyrirhugað deiliskipulagssvæði nær yfir land þriggja jarða, Hvallátra, Breiðavík og Keflavík. Á staðnum verða fulltrúar Baark arkitektastofu sem vinna skipulagið fyrir hönd Vesturbyggðar. Einnig verða starfsmenn Umhverfisstofnunar og Vesturbyggðar sem koma að skipulagsmálunum. Vinnugögn fyrirhugaðs deiliskipulags eru aðgengileg á heimasíðu Vesturbyggðar og hjá skipulagsfulltrúa í síma: 4502300/4502312 eða tölvupósti á armann@vesturbyggd.is. Einnig er hægt að óska eftir gögnum skriflega hjá Ármanni Halldórssyni, skipulags- og byggingarfulltrúa Vesturbyggðar (Aðalstræti 63, 450 Patreksfirði).

Íbúar og hagmunaaðilar eru hvattir til þess að mæta og gefst þeim tækifæri á að kynna sér skipulagsvinnuna og koma með spurningar og athugasemdir. Til kynningar verða uppdrættir í vinnslu af svæðunum.

Skjöl