Stök frétt

Koníakslegin hreindýralifur með rjómasósu og kartöflumús með villisveppum. Austfirskur hreindýraréttur frá Sigurdóri Sigvaldasyni yfirkokki á Hótel Héraði.

Lifrin

Hreindýralifrin er sneidd niður. Koníaki hellt yfir og látið bíða yfir nótt. Lifrin er léttsteikt á pönnu og krydduð með salti og svörtum pipar. Ef bitarnir eru þykkir er hægt að bregða lifrinni inn í ofn (hiti 200C) í nokkrar mínútur.

Sósan

Rjóma er síðan helt á pönnuna ásamt timian og koníaki. Þetta soðið svolítið niður og kryddað eftir smekk.

Kartöflustappan

Kartöflur soðnar. Lerkisveppir steiktir í smjöri á pönnu. Kartöflunum og sveppunum hrært saman í hrærivél. Rjóma bætt í og örlitlu salti.