Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir birgðastöð Skeljungs hf.á Reyðarfirði. Kröfur í tillögunni eru að mestu að mestu óbreyttar frá fyrra starfsleyfi. Eins og í nýlegri starfsleyfistillögu fyrir Olíudreifingu ehf. er lagt til breytt fyrirkomulag á eftirliti með virkni olíuskilja og skal nú fara yfir virknina hálfsárslega og ef hún er talin í lagi er fráveituvatn mælt á þriggja ára fresti. Áður var kveðið á um að mæla árlega en yfirferðin á hálfsárs fresti er ný krafa.

Tillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Fjarðabyggð, á tímabilinu frá 11. nóvember til 6. janúar 2011. Tillöguna má einnig nálgast á vefsíðu Umhverfisstofnunar, www.umhverfisstofnun.is, ásamt fylgigögnum. Umsagnarfrestur um tillöguna er til 6. janúar 2011. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna á auglýsingatíma. Þær eiga að vera skriflegar og berast til Umhverfisstofnunar.