Stök frétt

Mynd: Daniel Sinoca - Unsplash

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Ævintýradalsins ehf. vegna bleikjueldis í Heydal, Súðavíkurhreppi.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 11. nóvember til og með 12. desember 2022 þar sem hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst vegna tillögunnar. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl

Ákvörðun um útgáfu, Ævintýradalurinn ehf.
Starfsleyfi, Ævintýradalurinn ehf.