Stök frétt

Mynd tekin af MAP.is
Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi Silungs eldisstöð ehf. að Laxalóni í Reykjavík. Um er að ræða landeldi með fráveitu í ferskvatn þar sem hámarkslífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 15 tonn og ársframleiðsla ekki yfir 15 tonn. Rekstraraðili hefur verið með leyfi á sömu staðsetningu undanfarin ár.

Umhverfisstofnunar metur það þannig að helstu áhrif verði í formi næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu sem munu verða losuð í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn þar sem frárennsli er hreinsað með settjörnum áður en því er veitt í viðtakann. Í starfsleyfi eru ákvæði þar sem hægt er að gera aukna kröfu um hreinsun fari rekstaraðili yfir þau mörk sem sett hafa verið í leyfið.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202001-203, umsagnir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 28. júní 2021.
Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi Silungur eldisstöð ehf.