Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi frá Háafelli ehf. í Ísafjarðadjúpi. Um er að ræða framleiðslu á 6.800 tonnum af regnbogasilungi og 200 tonn af þorski í sjókvíaeldi. Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.